Færsluflokkur: Bloggar
Hér eru 3 milljónir sem þú mátt sækja
14.9.2011 | 17:11
Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur tilkynnt Lýðræðishreyfingunni að það sé fullkomlega löglegt að skera á útsendingarkapla útvarpsstöðva og stela búnaði þeirra. Þið getið óhrædd farið í næsta loftnetsmastur og fjarlægt búnað fyrir milljónir króna án þess að sæta nokkurri ákæru. Þetta er innihaldið í bréfi Lögreglustjórans í Reykjavík til Lýðræðishreyfingarinnar þann 24 júní 2010. Bréfið var undirritað af Karli Vilbergssyni löglærðum fulltrúa Lögreglustjórans í Reykjavík.
Bréfið frá Karli löggu kom sem svar við kæru Lýðræðishreyfingarinnar vegna skemmdarverka aðstandenda útvarpsstöðvarinnar Kanans á búnaði Lýðvarpsins, en þessir aðilar skáru á útsendingarkapal úr sendi Lýðvarpsins og fjarlægðu loftnet úr mastri Lýðvarpsins. Fullkomlega löglegt samkvæmt úrskurði Lögreglustjórans í Reykjavík!
Í dag er hægt að keyra uppí Bláfjöll á bíl. Enginn snjór og fínn vegur upp fjallið. Og þar bíður þín útvarpsbúnaður Kanans sem þeir meta á 3 milljónir króna. Tilbúinn til að sækja hann í ólæstu skúrskrífli. Loftnetin á litlum staur fyrir utan. Hér eru myndir og skýringar hvernig þú berð þig að:
Þriggja milljón króna útvarpsbúnaður Kanans er í litlum skúr við hlið skíðabrekkunar í Kóngsgili. Þú ekur uppí Bláfjöll og þaðan upp skíðabrekkuna. Þú sérð síðan skúrinn rétt áður en þú kemur að skíðalyftunni á vinstri hönd.
Þetta er lítið skúrskrífli með litlum glugga á hinni hliðinni og engum lás.
Þetta er mastrið. Allir kaplar eru óvarðir. Auðvelt að klippa á kaplana. En réttast að nota einangraður klippur nema fyrst fara í skúrinn og aftengja rafmagnið því það er smá spenna á kaplilnum.
Svona liggur útsendingarkapallinn óvarinn á jörðu. Auðvelt að klippa á útsendinguna. En betra að nota klippur með einangrun svo þú fáir ekki stuð úr kaplinum.
Hér er sendirinn inní skúr. Lítill gluggi og við hliðina hurð sem sýnist ólæst.
Hér er hurðarlæsingin. Nylon band sem bundið er til að loka hurðinni!
Nú er bara að sækja draslið! Tek hatt minn ofan fyrir þeim sem tekur þetta drasl eignarnámi úr því að slíkt er í dag löglegt samkvæmt úrskurði Lögreglunnar í Reykjavík. Þar að auki er víst Kaninn í einhverju kennitöluflakki, þannig að það er einnig spurning um hver á þennan búnað?
Ísland í dag, paradís krimma með velþóknun lögreglunnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lýðvarpið FM100.5 sendir út frá Austurvelli kl. 15 í dag
8.6.2009 | 12:05
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skipuleggjum nýja dagskrá. Viltu starfa við útvarp?
2.6.2009 | 11:59
Skipuleggjum nýja dagskrá. Viltu starfa við útvarp? Dagskrárgerð og láta rödd þína heyrast? Ræða fréttir og þjóðmál? Eða sjá um markaðsmál og auglýsingasölu. Starfa sjálfstætt? Hlutastarf? Kynntu þér möguleikana og sendu umsókn á http://job.lydvarpid.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vantar þér að selja hlustaðu á fm 100.5
25.5.2009 | 13:16
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Markaðstorgið kl 13:00 í dag á fm 100.5
22.5.2009 | 11:59
Í dag verður þátturinn markaðstorgið á Lýðvarpinu fm 100.5 þar sem hlustendur kaupa og selja allt milli himins og jarðar og hægt er líka að óska eftir hlutum og má auglýsa hvað sem er.
Þessi þáttur er gerður til að létta fólki að koma hlutum í verð og er síminn 4-500-500 og ýtt er á 1 til að komast í beina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sturla Jónsson: „Ég er búinn að gefast upp“ en verður í heitapottinum í síðdegisútvarpinu
20.5.2009 | 12:07
Núna á föstudag verður Sturla Jónsson mótmælandi og vörubílstjóri í heitapottinum í síðdegisútvarpinu á lýðvarpinu fm 100.5 og verður hlustendum gefið tækifæri til að hringja inn og spyrja hann spurninga og ræða við hann um öll mál og einnig verður rætt við hann um það sem honum finnst um nýja ríkistjórn og hvað hann telur að muni gerast í framtíðinni og líka verður rætt um IMF og fl.
mundu síminn er opin 4 500 500 og muna að ýta svo á 1
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Krossgötur í kvöld Guðjón A Kristjánsson
20.5.2009 | 11:25
í kvöld í þættinum krossgötur verður Guðjón A Kristjánsson formaður frjálslyndra og er þessi pistil kl 18:25 í 30 mín og er öllum velkomið að taka þátt í að tjá sig hér í hálftíma eina sem þarf að gera er að senda okkur póst á mjolnir@internet.is og við finnum tíma handa þér í þessum hálftíma er allt leift og þú getur tala um hvað sem er og er það hægt með að þú komir hingað í studio og líka er hægt að gera þetta í síma eða þú tekur upp 30 mín heima hjá þér og sendir okkur eina skiliðrið sem við setjum er að þú talir undir nafni.
Hafðu samband við okkur mjolnir@internet.is eða hringdu í síma 4500500 og biddu um dagskrástjóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Markaðstorgið er nýr þáttur á fm 100.5
19.5.2009 | 13:14
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þjóðarsálin á Lýðvarpinu síminn er opin 4-500-500
15.5.2009 | 13:18
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)